Frá 1949

Vaka í yfir 70 ár.

Hjálparstarf fyrir ökumenn hefur verið kjarninn frá fyrsta degi.

Auglýsing tengd Vöku árið 1958

Tímalína

1949

Vaka stofnuð af Hans Frost og Niels Jörgensen

1958

Hjalti Stefánsson eignast félagið og uppboð hefjast í aðstöðunni

1974

Ingólfur Sigurðsson og fjölskylda taka við rekstri

2004

Einar og Sveinn Ásgeirssynir kaupa félagið

Um fyrirtækið

Hjálp nótt sem dag.

Upphaflegur tilgangur Vöku var að hafa kranabíl tiltækan þegar bifreiðar laskast, fara út af vegi eða teppast í snjó. Enn í dag er bifreiðaaðstoð meginverkefni félagsins, ásamt flutningum, dekkjaþjónustu, varahlutum og móttöku bíla til förgunar.

Fyrirtækið hefur lengi verið þekkt fyrir dráttarbílaþjónustu og Vaka-portið. Starfsemin tengir þannig saman tafarlausa aðstoð, daglega bílaþjónustu og endurnýtingu.

Skoða þjónustuna
Vaka þegar þú þarft

Við svörum allan sólarhringinn.