Frá vali til uppsetningar

Ferlið, skref fyrir skref.

Skýr verktilhögun hjálpar til við að tryggja réttar mælingar, nákvæma vinnslu og faglega uppsetningu.

01

Tilboð staðfest

Þegar verktilboð hefur verið staðfest með 50% innborgun er verkamappa stofnuð, efni tekið frá og verkið skráð í kerfi Steinprýði.

02

Mæling

Mæling fer fram þegar innrétting er komin á sinn stað og endanlega stillt. Vaskur og helluborð eiga að vera á verkstað við mælingu.

03

Framleiðsla

Steinprýði vinnur allan stein sjálf. Breytingar á verki þurfa að berast eins snemma og hægt er svo hægt sé að taka tillit til þeirra.

04

Uppsetning

Uppsetning er tímasett og staðfest með að minnsta kosti sólarhrings fyrirvara. Hægt er að óska eftir að gamlar plötur séu fjarlægðar gegn gjaldi. Bíða skal í 24 klukkustundir eftir uppsetningu áður en borðplatan er tekin í notkun.

Fá tilboð

Veldu stein. Við sjáum um framhaldið.

Fáðu verktilboð, mælingu, eigin framleiðslu og faglega uppsetningu.

Óska eftir tilboði