Íslensk hönnun og framleiðsla

Húsið fokhelt á 5 dögum.

Vönduð timburhús, hönnuð og byggð fyrir íslenskar aðstæður — með teikningum sem hægt er að aðlaga að þínum óskum.

SG-E89 íbúðarhúsSG-S99 sumarhúsBarnaskóli Hjalla
Húsagerðir

Hús fyrir ólíkt líf og ólíkar þarfir.

Veldu grunnteikningu og aðlagaðu hana að staðsetningu, útsýni, sólarátt og þínum óskum.

Íbúðarhús

Íbúðarhús

Fjölbreytt úrval stærða og herbergjafjölda

Sumarhús

Sumarhús

Frá litlum húsum að rúmgóðum sumarhúsum

Fjölnotahús

Fjölnotahús

Lausnir á borð við skóla og önnur sérverkefni

Byggingarhraði

Frá plötu að fokheldu húsi.

Dagur 1
01

Dagur 1

Einingum og sperrum raðað upp á steypta plötu.

Dagur 2
02

Dagur 2

Úthringurinn kominn upp og sperrur reistar.

Dagur 5
03

Dagur 5

Húsið fokhelt og fullbúið að utan með gluggum og útihurðum.

Sjá framleiðsluferlið
Um SG Hús

Reynsla sem sést í framkvæmdinni.

Frá árinu 1966

SG Hús hafa verið leiðandi í byggingu timburhúsa og húsin má finna um allt land.

Fjögur starfssvið

Sölu-, hönnunar-, framleiðslu- og véla- og tækjasvið vinna saman að húsinu.

Íslenskar aðstæður

Húsin eru hönnuð og byggð með fjölbreytilegt íslenskt veðurfar í huga.

Teikningar aðlagaðar

Teikningum er hægt að breyta eftir óskum, staðsetningu, sólarátt og útsýni.

Íslensk hönnun og framleiðsla

Ræðum húsið sem þú vilt byggja.

Hafa samband