
Sérsmíðuð íslensk framleiðsla
Óskir þínar í gluggum.
Fyrsta flokks gluggar unnar með fagmennsku og nákvæmni, samkvæmt óskum hvers og eins og gæðakröfum GK Glugga.
Framleiðslan
Sérhannað fyrir hvert verkefni.
Hægt er að fá allar gerðir timburglugga og -hurða. Fyrir nýbyggingar er hægt að afhenda karma fyrst og fög og hurðir þegar húsi hefur verið lokað. Það getur dregið úr geymsluþörf og hnjaski á fullunninni vöru.
- Teikningar eða ljósmyndir með málum eru lagðar til grundvallar tilboði.
- Áætlaður afhendingartími er tilgreindur í tilboði.
- Stærð, útlit, gerð, frágangur og opnun koma fram á teikningum.
- Framleiðsla hefst eftir samþykki verkkaupa.

01
Sendu teikningar
Sendu glugga- eða hurðateikningar, eða ljósmyndir með skráðum málum.
02
Fáðu tilboð
Tilboð er gert samkvæmt framlögðum gögnum og áætlaður afhendingartími kemur fram.
03
Staðfestu útfærslu
Einingarnar eru teiknaðar og teikningar sendar verkkaupa til samþykktar.
04
Framleiðsla hefst
Eftir staðfestingu verkkaupa getur framleiðsla hafist.
Efni og frágangur
Vandað hráefni og stýrt vinnsluferli.
Valið hráefni
Fura, Oregon Pine, mahóní, tekk og sérframleitt límtré eru meðal þeirra efna sem koma til greina.
Stýrt rakastig
Rakaskynjarar í vinnslusal halda réttu rakastigi timburs á framleiðslustigum.
Yfirborðsmeðhöndlun
Hægt er að velja fullmálað, olíuborið, grunnfúavarið eða ómeðhöndlað yfirborð.
Gler og búnaður
Hægt er að velja um tegundir og liti á gleri, IPA skrá- og lamakerfi og Qlon þéttilista.
